Friday, May 14, 2004

Jæja, kæra bloggsíða. Það er ekki oft sem ég skrepp í heimsókn til þín núna. Ég hef verið mjög upptekin við að lagfæra og ljúka við heimasíðuna mína, jafnvel þó henni verði aldrei alveg lokið. Það er hellingur sem ég hef hugsað mér að setja inn en ekki gert ennþá. En grunnurinn er þó kominn og þetta verður að duga í bili. Ég er í bakslagi frá Reykjalundi. Virðist hafa ofkeyrt mig. Svefnlaus og slöpp. Svo aldrei þessu vant er ég að nota svefntöflur sem er eiginlega ekki spennandi en þó getur verið gott til að ná upp hvíld. Það er svona þegar heilsan er ekki í jafnvægi þá þolir maður ekki eins og venjulega. En hvað um það. Ég verð að trúa á batnandi tíma. Systir mín og maðurinn hennar eru að útskrifast bæði sem doktorar í dag frá háskóla í Iowa og svo á sonur þeirra líka afmæli í dag og verður 9 ára. Þau komust ekki til Iowa þannig að þau fá prest heim til að framkvæma athöfnina og fara í viðeigandi búninga sem þau fengu senda frá Iowa. Útskriftin þeirra fer að meira að segja fram á sama tíma. Þannig að þetta verður örugglega hátíðleg og eftirminnileg stund. Og ég óska þeim innilega til hamingju og veit að þau eru ósköp fegin að þetta er búið. Þau eru búin að vera að vinna í þessu árum saman með meira en fullri vinnu. Þau standa vel saman og kláruðu þetta. Annars eru breyttir tímar núna. Skólinn búinn, fjölskyldunámskeiðið búið sem ég er búin að vera á , ítölskunámskeiðið líka. Mig hlakkar þó til að fara að kaupa sumarblóm og setja niður og einnig verð ég að fara að gera vorhreingerningu og helst að sparsla og mála í íbúðinni hjá mér. Svo er bara að sjá hvernig sumarið verður???? Gleðilegt sumar öll sömul og takk fyrir veturinn.!!!!

Sunday, May 09, 2004

Það er komin maí. Það er langt síðan ég fór á bloggið síðast. Inní þetta tímabil kom mikil vinna í sambandi við skólann. Skólalotan var 30 apríl og 1 mái og gekk hún mjög vel. Það er alltaf gaman að hitta fólkið í hópnum aftur og kennarana. Við erum orðin svo góðir vinir. Svo er ég byrjuð á Reykjalundi. Ég keyri þangað 5 daga í viku eins og vinnu og verð tekin í allsherjar endurvinnslu og nám. Ég hlýt að verða mun betri þegar ég verð búin að vera þar í mánuð eða tvo því ég á að labba 3 kílómetra á dag. Vera í tækjum 1 tíma á dag. Vatnsleikfimi 4 sinnum í viku. Svo er ég í slökun líka nokkrum sinnum í viku. Á föstudögum fáum við að velja eitthvað skemmtilegt. Það var mjög gaman núna á föstudaginn. Þá fór ég með hjólið hennar dóttur minnar og fékk sýnikennslu í að gera við það. Svo gerði ég mósaík platta. Það er eitthvað sem ég hef viljað gera árum saman. Í gær var samt ekki skemmtilegt. Mér var boðið rauðvín og svo kaffi og grand mariner í fyrrakvöld ásamt kaffi. Ég varð fárveik af þessu. ÉG hefði alveg eins getað hellt í mig Ajax eða bóni eða einhverju öðru álíka viðbjóðslegu. Ég gerði ekki handtak í gær. Varðbara ap leyfa eitrinu að fara úr líkamanum. Það er eins gott að ég lendi ekki oft í svona. Síðast kom þetta fyrir, fyrir nokkrum árum síðan. Einnig út af einhverjum kaffilíkjör. Það er reyndar búið að upplýsa mig um það að þessum tegundum má aldrei blanda saman með rauðvíni. Jæja, núna verð ég að sparka í rassinn á mér og klára að laga vefsíðuna mína. Það er síðasti skiladagur í dag. Og ég á helling eftir. Var svo uppgefinn í vikunni eftir allar nýju æfingarnar og svo ónýt í gær. Reyndar er ég áfram búin að vera á mjög gefandi námskeiðum í þessarri viku þar sem mikil grúppudýnamik er í gangi og mjög góðir hlutir að gerast. Svo mitt í öllu þessu með sjálfsskoðun og uppbyggjandi prógram var skrýtið að falla bar inní slæma þynnku, en hins vegar gaf það mér gott færi á að velta ýmsu fyrir mér og bara vera. Það er líka það sem ég ætla að gera á næstunni. Bara vera, njóta og byggja mig upp vera sátt við sjálfa mig og tilveruna jafnvel þótt að ýmislegt hafi gengið á. Framundan er sólin,vorið og nýir möguleikar.

Thursday, April 22, 2004

Jæja, kæra bloggsíða. Nú hef ég heldur betur vanrækt þig. Ég var á fullu í páskaboðum með fjölskyldunni svo er ég búin að vinna áfram í Alanon og dreif mig síðustu helgi á Fjölskyldunámskeið fyrir aðstandendur alkóhólista ásamt fleirum í fjölskyldu minni. Var það nokkuð sem ég er búin að vera á lengi á leiðinni í og þess vegna er ég komin á fullt á kaf í innri vinnu. Er á framhaldsnámskeiði útaf þessu núna í 3 vikur. Tvisva í viku á kvöldin. Kom þetta svona snögglega út af meira desperatdæmi í fjölskyldunni minni. Svo fékk ég líka þessa ótrúlega óskemmtilega pest sem ég hef heyrt að margir séu búnir að fá. Þar sem maður kvelst einhverns staðar tímunum saman með maga sem maður upplifir að lifandi krabbi sé inní manni og maður kemst ekki á klósettið og það rennur úr manni alls staðar kúkasúpan. Eftir þessi veikindi þvoði ég tvær þvottavélar sem voru með 5-6 nærbuxum, 5-6 handklæðum, nokkrum sængurverum, þvottapokum o.s.frv. Það hefur nú komið fyrir að maður hafi fengið niðurgang í lífinu. En með þetta var maður bara mest ánægður að komast lífs af. En staðan núna er mér mjög í óhag. Ég var skelfingu lostin þegar ég átti að byrja aftur í skólanum og hafði ekki komist í neitt sem ég ætlaði að vera búin að gera. En ég ætla en einu sinni þó svo ég ætti löngu að vera dottin út úr þessu námi að reyna að skreiðast síðustu metrana í þessu hlaupi. Og lykillinn er sá að maður hafi einhvern til þess að vera í samskiptum við. En það er að ploggast allt inn núna svo næstu daga verður maður bara að keyra. Reyndar er ég að byrja í endurhæfingu á Reykjalundi í næstu viku sem er langþráð fyrir mig. Því oft er sárt að standa uppúr rúmminu, snúa sér við um nætur, keyra bílinn og svo frv. Þannig að ég sé fram á batnandi tíma með vorinu og bættri heilsu. Svo mig hlakkar í raun og veru til núna þegar skólinn er búinn því nú er komið svo mikið af nýjum verkefnum inn sem ég þarf að sinna vel. Hins vegar er skólinn búinn að vera frábær reynsla í vetur og gefa manni tækifæri á því að læra ýmislegt. Svo veit ég ekkert um næsta vetur. Það er allt óskrifuð bók eins og er.

Sunday, April 11, 2004

Jæja, þá er maður búinn að vera á fullri keyrslu lengi. Sænsku konurnar mínar fóru í gær. Við forum saman að Gullfoss, Geysi, Þingvöllum og fórum svo að borða í Rauða húsinu á Eyrarbakka. Það var frábær ferð. Og mjög notalegur veitingastaður Rauða húsið. Var í páskadinner með fjölskyldunni minni. Það var fínt. Við vorum mörg saman. Vikan með Afríkutrommunámskeiðið gekk bara mjög vel. Mið náðum einstaklega góðu sambandi við sem vorum á námskeiðinu. Reyndar bókaðist ekki mjög vel á það. Samt gekk þetta allt upp og við vorum með sýningu á föstudaginn langa sem að heppnaðist mjög vel. Núna er ég þó bara þreytt og finnst skrýtið að fara að lifa hversdagslegu lífi aftur en þó mjög gott. Langar að fara að taka því meira rólega. Er reyndar mjög syfjuð núna og verð bara að fara að leggja mig.
Góða nótt, öll sömul.
Á morgun er svo áframhaldandi fjölskylduboð og meira súkkulaðiát.

Thursday, April 08, 2004

Þá er ég komin aftur. Er búin að vera á fullu með 5 sænsku konunum mínum og tromma, tromma og gera alla veganna frábæra hluti með þeim. Bláa lónið, út að borða,borða páskaegg, dansa og syngja og fleira.
Ég vaknaði samt upp eins og oft áður og finn að ég er orðin voða þreytt á því að vakna alltaf eða svotil alltaf með verki. Ég man núna varla hvernig það var að vakna ekki upp með verki og oftast tekur það mig langan tíma að komast í gang. Svo það verður mjög nauðsynlegt fyrir mig að komast í góða endurhæfingu sem ég byrja væntanlega í í apríl. En hins vegar er ég líka búin að ná að gera marga og fjölhæfa hluti núna þegar ég er ekki að vinna. En heilsan er samt dýrmætust. Að hafa hálfa getu á við áður er ekki skemmtilegt.
Þá hlýðir líkaminn oft ekki og mann dreymir um að gera alla veganna einfalda hluti en kemst svo ekki af stað.
Ég er búin að vera í allt of mikilli keyrslu undanfarið og hlakkar til um páskana að vera heima í rólegheitum og úða í mig súkkulaði með stelpunum mínum. Það er búið að vera svo mikið um tilbreytingu undanfarið að mig langar bara í rólegheit. Erlendir gestir 2 vikur. En vitið þið hvað: Þeir eru komnir, þeir eru komnir. Já, kettlingarnir eru loksins fæddir. Pínulítil krútt en mjög litlir og viðkvæmir. Þeir eru núna 2 daga gamlir. Stelpurnar eru núna alveg í skýjunum yfir þeim. Sú yngri fæst ekki núna útúr húsi og í gær kom röðin af börnum að skoða. Yndislegt. Systir mín kom einnig með dóttur sína og við kjöftuðum helling saman. Svo var ég í gærkvöldi í matarboði með þeim sænsku og það var geggjað. a

Sunday, April 04, 2004

Halló aftur. Þetta er búinn að vera góður dagur enda sól og fínt í dag. Byrjaði með því að fara að synda í Árbæjarlaug. Svo var verið að undirbúa komu 5 kvenna frá Svíþjóð. Allt þrifið og svo eldaður grænmetismatur. Við þurftum að fara 2 og sækja þær, því bíllinn minn tekur aðeins 4 farþega. Svo var farið heim til mín og borðað og borðað og kjaftað. Við íslensku tölum báðar sænsku svo eitthvað var maður að hressa uppá sænskuna sína. Svo keyrðum við þær uppí Waldorfskólann Lækjarbotnum. Þar tók svolítinn tíma þar til allir höfðu fengið dýnur, áklæði og fleira. Svo núna þarf ég bara að fara að sofa. Ég missti reyndar af fermingarveislu út af öllu þessu stússi í dag. En á morgun vakna ég upp bæði til að tromma og fara í matarinnkaupaleiðangur fyrir námskeiðið. Um kvöldið fer ég svo í fermingarafganga. Góða nótt.

Saturday, April 03, 2004

Jæja sendingin áðan misheppnaðist svo núna sendi ég bara eitthvað stutt. Ég er á fullu í Afríkutrommudæminu sem ég hef verið að skipuleggja: Christina Aspequist er að koma frá Svíþjóð og verður með spennandi og líflegt Afríkutrommunámskeið í Waldorfsskólanum í Lækjarbotnum ca. 20 mín. akstur frá Reykjavík. Námskeiðið er í viku og þar er einnig húsnæði, grænmetisfæði og falleg náttúra. Hins vegar verða líka 2 stakir dagar opnir öllum og hægt er að kaupa sig inn einn dag á 4000 kr. Þá er léttur matur innifalinn í hádeginu en annars trommað frá 10-12 og 14-18.00. Þetta ætla margir að einhverjir íslendinar að notfæra sér á skírdag. Einnig er opinn dagur þriðjudagur fyrir skírdag. Á föstudaginn langa er sýning og námskeið fyrir börn sem kostar 1000 á barn ásamt sýningunni. Svo látið mig bara vita með e-mail ef einhver vill koma og vera með. Christina er mjög fær og hefur kennt mjög ungum börnun allt til gamalmenna. Hún hefur einnig kennt verðandi tónlistarkennurum. Svo hefur hún verið með námskeið víða m.a. í Afríku. Þá ætla ég að segja bless og Góða nótt því ég hef nóg að gera.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?